Akureyrarmótið í sveitakeppni

miðvikudagur, 9. febrúar 2011

Nú er farið að sjá fyrir endan á Akureyrarmótinu í sveitakeppni en 12 umferðum er lokið af 14. Efstir eru þeir í sveit Guðmundar Halldórssonar sem áttu mjög gott kvöld og eiga nú 24 stig á sveit Stefáns Vilhjálmssonar í 2.sæti.

Með Guðmundi spila Sigurbjörn Haraldsson, Magnús E. Magnússon, Þórólfur Jónasson og Sveinn Aðalgeirsson.

Öll úrslit og butler má sjá neðst á úrslitasíðu BA

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar