Akureyrarmeistarar í sveitakeppni 2011
sunnudagur, 20. febrúar 2011
Eftir 5 kvölda spilamennsku er ljóst að tryggur sigur er í höfn hjá sveit Guðmundar Halldórssonar í Akureyramótinu í sveitakeppni. Með honum spiluðu Þórólfur Jónasson, Sveinn Aðalgeirsson, Magnús E. Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson.
Til hamingju!
Efstu sveitir urðu:
1. Sv. Guðmundar Halldórssonar 275
2. Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 243
3. Sv. Stefáns Sveinbjörnssonar 229
4. Sv. Old Boys 228
Butler og nánari úrslit hér
Næsta mót hjá B.A. er tveggja kvölda Góutvímenningur svo endilega bara mæta og skrá sig á staðnum.