Þórður og Birgir í forystu í þriggja kvölda Monrad-tvímenningi.

föstudagur, 7. janúar 2011

Þriggja kvölda monrad-barómeter hófst hjá Bridgefélagi Kópavogs í gærkvöldi. Þórður Björnsson og Birgir Örn Steingrímsson eru efstir eftir fyrsta kvöld með 61,6% skor. Öll úrslit og spil má sjá hér.

Hvert kvöld er spilað sem sér keppni en verðlaun veitt fyrir heildarárangur úr öllum þremur kvöldunum.

Hægt er að bæta inn fleiri pörum seinni tvö kvöldin en þau eiga þó ekki rétt á verðlaunum.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar