Fimm kvölda butlertvímenningur hafinn á suðurnesjum
fimmtudagur, 13. janúar 2011
16 pör mættu til leiks í fimm kvölda butlertvímenningi. Spiluð verður tvöföld umferð, 5 spil milli para og 30 spil á kvöldi. Efstir eftir fyrsta kvöld er þeir Jóhannes Sigurðsson og Karl Hermannsson með 49 Impa. Svolítið á eftir þeim koma þeir Svavar Jensen og Arnór Ragnarsson með 34 Impa.
Mótið heldur áfram næstu 4 miðvikudaga og hefst spilamennska kl 19:00