Bridgehátíð Vesturlands: Birkir Jón og Anton unnu tvímenninginn
mánudagur, 10. janúar 2011
Birkir Jón Jónsson og Anton Haraldsson stóðu uppi sem sigurvegarar í tvímenningskeppni Bridgehátíðar Vesturlands með skor upp á 61,5%. Í öðru sæti enduðu Harpa Fold Ingólfsdóttir og Svala K Pálsdóttir og í 3. sæti enduðu þeir Bjarni Einarsson og Aðalsteinn Jörgensen.