Bridgefélag Rangæinga (28)
mánudagur, 10. janúar 2011
Fyrsta þriðjudag þessa árs hittust topp 16 spilarar síðasta spilaárs í félagsheimili Bridgefélags Rangæinga og öttu kappi í einmenningi. Sláturhúsið á Hellu gefur vegleg verðlaun sem og sárabætur. Í verðlaun er saltkjötssoðning sem og í sárabótum. Eftir æsispennandi kvöld þar sem menn skiptust á að leiða hópinn var það snillingurinn Sigurjón Pálsson sem náði að landa titlinum í ár. Nánari úrslit hér.
Framundan:
Nk. þriðjudag hefst sveitakeppnin og eins og áður raða ég í sveitir.
Jólamótið okkar verður svo spilað laugardaginn 15. janúar. Vinsamlegast tilkynnið einnig þátttöku í það mót sem fyrst.