Bridgefélag Rangæinga (27)

fimmtudagur, 23. desember 2010

Jólabarómeter (Landsbankabarómeter)

Það er ekki hægt að segja annað um okkur Rangæinga en að gestrisnin sé ávalt höfð í fyrirrúmi.  Síðastliðið þriðjudagskvöld varð  engin undantekning frá reglunni.  Meira að segja meistarar fyrri áratuga (hér er átt við Torfa og Sigga) tóku þátt í að leyfa þeim virtu gestum, sem sýndu félagsmönnum þann heiður að eyða með þeim einni kvöldstund, að vera eins ofarlega og mögulegt var.  Án þess þó að beita brögðum auðvitað.  Úrslitin urðu þau að Helgi og Billi (gestir) urðu í 1. sæti og Össi og Kalli (gestir) urðu í því 3.  Eitthvað sáu meistarar okkar eftir öllu saman og nældu því í 2. sætið þegar líða tók að lokum.  Úrslit má sjá hér.  

Skemmtilegt kvöld og önn að baki.  Bridgefélag Rangæinga óskar ykkur og fjölskyldum ykkar, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.     Stjórn Bridgefélagsins þakkar ykkur skemmtilegar samverustundir við spilaborðið á árinu og hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári!

Örlitlar breytingar verða á áður auglýstri dagskrá:
Jólamótið okkar verður með seinni skipunum þetta árið og verður allt á því páskamót.    Til stóð að halda það laugardaginn 8. janúar en því hefur nú verið frestað til laugardaginn 15. janúar.   Ástæðan er tvíþætt.   Annars vegar verður HSK tvímenningurinn spilaður á Selfossi föstudagskvöldið 7. janúar og hins vegar er löng hefð orðin fyrir Bridgehátíð Vesturlands í Borgarnesi þessa helgi og býst ég við að einhverjir, sem annars kæmu til okkar, muni sækja það mót.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar