Bridgefélag Rangæinga (24)

fimmtudagur, 18. nóvember 2010

Nú er 5 kvölda Bryti  (e. Buttler) hafin hjá félaginu.  Þegar hafa tvö kvöld liðið hjá og því töluverð spenna hlaupinn í mannskapinn.  Úrslit fyrsta-kvöldsins urðu þau að Siggi og Torfi mörðu sigur með 67 stig en annað sætið náði 63.  Síðasta þriðjudag var svo leikinn annar í Bryta og það er skemmtilegast frá því að segja að 2. bekkur nýliða náði þeim frábæra árangri að enda í 2. sæti eftir kvöldið.  Frábær árangur og til hamingju með þetta Diddi og Tommi!  En önnur úrslit þetta kvöld urðu þau að Óskar og Guðmundur náðu öruggum sigri með 50 stig eða 21 stiga forskot á næstu menn.  En í samanlögðu eru það frænd-/bræðurnir Torfi/Ægir/Ævar sem leiða Brytann.  Nánari úrslit má sjá hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar