Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen stóðu uppi sem sigurvegarar.

fimmtudagur, 30. september 2010

Í eins kvölds tvímenningi hjá bridgefélagi Suðurnesja/Muninn sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 67.4% skor. Næstir á eftir þeim voru þeir Jóhannes Sigurðsson og Óli Þór Kjartansson með 61.1% skor. 

Næsta miðvikudag byrjar þriggja kvölda Butlertvímenningur, og hefst spilamennska kl. 19:00. Bjóðum við alla velkomna að taka þátt í því.

Úrslit má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar