Bridsfélag Kópavogs lauk tímabilinu 6. maí.
Fimmtudaginn 6. maí var síðasta spilakvöldið á þessum vetri hjá
bridgefélagi Kópavogs.
Fyrr um kvöldið var haldinn aðalfundur félagsins og þar steig
formaðurinn Loftur Pétursson niður eftir 10 farsæl ár og vill
félagið þakka honum fyrir mjög vel unnin störf. Heimir Þór
Tryggvason tók við sem formaður félagsins.
Eftir fundinn var haldinn skemmtilegur tvímenningur þar sem dregið
var saman í pör og allir spiluðu sama kerfi sem var mjög, mjög
einfaldur standard.
Nokkuð öryggir sigurvegarar urðu Guðni og Heimir en úrslitin urðu
þessi.
1. Guðni Ingvason-Heimir Þór Tryggvason 144
2. Hjálmar S Pálsson-Bernódus Kristinsson 113
3. Erla Sigurjónsdóttir-Sigurður Sigurjónsson 112
3. Ragnar Örn Jónsson-Arnar Arngrímsson 112
Eftir spilamennsku var bronsstigameistari félagsins krýndur. Fyrir
lokakeppnina voru makkerarnir Sigurður Sigurjónsson og Ragnar
Björnsson efstir og jafnir með 473 stig. Þegar búið var að reikna
síðasta tvímenninginn kom í ljós að hann gerði útslagið því
Sigurður Sigurjónsson náði sér í 3,5 stig fyrir þriðja sætið á móti
systur sinni henni Erlu og þessi dýrmætu stig færðu Sigurði
sigurinn og var hann því krýndur bronsstiga meistari Bridgefélags
Kópavogs 2009.
Til hamingju Siggi með árangurinn.
Félagið vill þakka öllum þeim sem komu og settu svip sinn á skemmtilegan vetur og vonumst við til að allt áhugafólk um bridge leggi leið sína í kópavoginn og taki spil með okkur þegar vetrarstarfið fer aftur af stað næsta haust.