Bridgefélag Rangæinga (17)
Aðaltvímenningur Rangæinga lauk síðasta þriðjudagskvöld og
fullyrða elstu menn að aðaltvímenningurinn hafi aldrei
unnist með eins litlum mun og nú varð. Það má segja að
úrslitin hafi nánast ráðist á einum Impa og því rétt að hafa í huga
að betri er einn Impi á blaði en tveir í orði.
Sigurvegararnir náðu 57.85% þegar 4 af 5 bestu kvöldin eru talin
saman en það verða sætaskipti á 1 og 2 sæti ef öll kvöld eru talin
saman. Þeir sem enduðu 2. sæti náðu 56.75% heildarskori en
57.60% (4 af 5).
Með sigur af hólmi fóru Sigurður og Torfi, þeir áttu jafnt og gott
mót og sigurinn verðskuldaðan. Í öðru sæti urðu Halldór
og Kristján, en því miður dugði eldmessan ekki að þessu sinni en
full trú er á því að þeir komi fílefldir til leiks að
ári. Þessum snillingum er óskað til hamingju með góða
spilamennsku og frábæran árangur. Nánari úrslit má sjá hér.