Bridgefélag Rangæinga (15)

fimmtudagur, 18. mars 2010

Þriðja kvöld í aðaltvímenningi Rangæinga var haldið nú rétt liðinn þriðjudag.  Þrettán pör mættu til leiks og því var yfirsetunni leyft að vera með þetta kvöldið.  Svavar og Ólafur stóðu sig með prýði  og unnu kvöldið með 138 stigum og 57.5% skori.  Í heildarkeppninni er spennan enn að aukast og skipta menn á sætum eftir því hvernig reiknað er.  Ef versta kvöldið af þremur er tekið út þá hanga Torfi og Siggi á toppnum með 57.69% en ef öll þrjú eru reiknuð eru Torfi og Ævar efstir með 56.79%.  (Sem bendir til og sannar enn og aftur að það sé góð samsetning að nafnar spili saman).  Þarna rétt á eftir koma Magnúsarnir, Halldór-Kristján o.fl.  Það getur því allt gerst ennþá og menn halda fast í stólanna.  En nánari úrslit má sjá hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar