Bridgefélag Rangæinga (14)

fimmtudagur, 11. mars 2010

Aðaltvímenningur 2. kvöld
Þá er afstaðið  2. kvöld í aðaltvímenningi Rangæinga.  Eins og áður sagði telja 4 bestu af 5 og því er mótið að verða hálfnað.  Töluverð spenna er að myndast þar sem nokkur pör eru nánast jöfn i fyrstu sætunum og leiða forustusauðirnir aðeins með broti úr prósenti.  Því er ljóst að lítið má fara úrskeiðis á næstu kvöldum.  Nú síðast sannaðist eitt enn máltækið "þeir síðustu verða fyrstir" því maggarnir komu síðastir en enduðu efstir og unnu ágætan sigur í tvímenningnum.  En banka-sláturhússtjórinn leiða heildarkeppnina með naumindum.  Nánari úrslit má sjá hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar