Úrslit í Kópavogi
Fimmtudaginn 25. febrúar var spilaður eins kvölda tvímenningur hjá bridgefélagi Kópavogs.
Fjórtán pör mættu til leiks og fóru leikar þannig.
1. Sigurður Sigurjónsson-Ragnar Björnsson 192 stig
2. Loftur Pétursson-Jón St Ingólfsson 191 stig
3. Guðlaugur Bessason-Sverrir Þórisson 191 stig
4. Heimir Þór Tryggvason-Árni Már Björnsson 182 stig
5. Baldur Bjartmarsson-Sigurjón Karlsson 182 stig
Fimmtudaginn 4. mars hefst fjögurra kvölda hraðsveitarkeppni. Við hvetjum alla áhugasama spilara til að mæta.
Stökum pörum verður hjálpað til að mynda sveitir svo það er ekkert því til fyrirstöðu að mæta næstkomandi fimmtudag.
Spilamennska hefst klukkan 19.00 og er spilað í félagsheimilinu Gjábakka í Kópavogi.