Akureyrarmót í Sveitakeppni – annað kvöld

fimmtudagur, 21. janúar 2010

Akureyrarmót í Sveitakeppni - annað kvöld 

Síðastliðinn þriðjudag lauk öðru kvöldi í Akureyrarmótinu í sveitakeppni hjá Bridgefélagi Akureyrar. Spiluð voru 30 spil eða einn og hálfur leikur. Eftir kvöldið eru þá búnir 3 leikir af 7. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar kom til leiks þetta kvöldið full sjálfstrausts eftir sigur í Svæðamóti norðurlands eystra í sveitakeppni um síðustu helgi. Sveit Stefáns vann báða sína leiki 22 - 8 og skaust þar með í fyrsta sætið. Eftir þrjá leiki er staðan þá eftirfarandi:  

Staða      Stig       Sveitir

  1     62    Stefán Vilhjálmsson     
  2     60    Þórólfur Jónasson       
  3     50    Frímann Stefánsson      
  4     47    Gylfi Pálsson           
  5     45    Víðir Jónsson           
  6     42    Oldboys
  7     33    Gissur Jónasson         
  8     14      Ragnheiður Haraldsdóttir
Með Stefáni í sveit eru þeir Örlygur Örlygsson, Grétar Örlygsson og Haukur Harðarson. 

Frekari úrslit einstakra leika má sjá á hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar