Akureyrarmót í Sveitakeppni – annað kvöld
fimmtudagur, 21. janúar 2010
Akureyrarmót í Sveitakeppni - annað kvöld
Síðastliðinn þriðjudag lauk öðru kvöldi í Akureyrarmótinu í sveitakeppni hjá Bridgefélagi Akureyrar. Spiluð voru 30 spil eða einn og hálfur leikur. Eftir kvöldið eru þá búnir 3 leikir af 7. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar kom til leiks þetta kvöldið full sjálfstrausts eftir sigur í Svæðamóti norðurlands eystra í sveitakeppni um síðustu helgi. Sveit Stefáns vann báða sína leiki 22 - 8 og skaust þar með í fyrsta sætið. Eftir þrjá leiki er staðan þá eftirfarandi:
Staða Stig Sveitir
1 62 Stefán Vilhjálmsson
2 60 Þórólfur Jónasson
3 50 Frímann Stefánsson
4 47 Gylfi Pálsson
5 45 Víðir Jónsson
6 42 Oldboys
7 33 Gissur Jónasson
8 14 Ragnheiður Haraldsdóttir
Með Stefáni í sveit eru þeir
Örlygur Örlygsson, Grétar Örlygsson og Haukur
Harðarson.
Frekari úrslit einstakra leika má sjá á hér.