Jólasveinatvímenningur BR
miðvikudagur, 16. desember 2009
Mikið var um jólasveina á síðasta spilakvöldi BR fyrir jól.
Hlutskarpastir á endasprettinum urðu (Jóla)Sveinn Þorvaldsson og
Guðlaugur Sveinsson. Fengu þeir dýrindis jólamat í verðlaun en
mikið var um útdráttarverðlaun fyrir þá sem mættu með
jólasveinahúfur. Efstu pör:
1. 59,0% Guðlaugur Sveinsson - Sveinn Þorvaldsson
2. 58,7% Gylfi Baldursson - Sigurður B Þorsteinsson
3. 57,3% Helgi Sigurðsson - Helgi Jónsson
4. 57,0% Stefán Jóhannsson - Sverrir Kristinsson
5. 56,0% Guðný Guðjónsdóttir - Halldóra Magnúsdóttir
Stjórn BR óskar spilurum öllum
gleðilegra jóla og minnir á jólamót BR 30.des og Reykjavíkurmótið
5.-19.janúar