Akureyrarmót hafið
miðvikudagur, 18. nóvember 2009
Síðastliðinn þriðjudag hófst
fjögurra kvölda Akureyramót í tvímenningi. Til keppni voru mætt 16
pör sem er fín mæting. Spiluð voru 9 umferðir, 3 spil á milli para
en spilað var eftir monrad fyrirkomulagi. Það er skemmst frá því að
segja að meðlimir Old Boys sveitarinnar komu sér vel fyrir í efstu
tvem sætunum en uppröðun fimm efstu para var
eftirfarandi:
- 65,3% Grettir Frímannsson - Stefán Ragnarsson
- 60,6% Pétur Guðjónsson - Hörður Blöndal
- 54,8% Jón Björnsson - Sveinn Pálsson
- 54,2% Ævar Ármannsson - Árni Bjarnason
- 52,1% Haukur Harðarson - Grétar Örlygsson