Greifatvímenningi B.A. lokið

miðvikudagur, 21. október 2009

Síðastliðinn þriðjudag var spilað þriðja og síðasta kvöld í impatvímenningi Bridgefélags Akureyrar. Þrjú efstu sæti kvöldsins voru þannig skipuð:  

Impar

47,3     Sigurbjörn Haraldsson - Reynir Helgason

30,0     Jón Björnsson - Sveinn Pálsson

22,0     Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson

  
Þegar þrjár setur voru eftir var orðið ansi jafnt á toppnum en þá 
gáfu þeir félagar Jón og Sveinn í og enduðu mótið með stæl. 
Breytingar á samanlagðri stöðu voru minniháttar en lokastaða 
eftir öll þrjú kvöldin var:
  
Impar
122,5      Jón Björnsson - Sveinn Pálsson      
77,0        Gylfi Pálsson - Helgi  Steinsson       
53,0        Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson 
32,5        Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal
29,0        Pétur Gíslason - Björn Þorláksson
Öll frekari úrslit má nálgast hér.
Næsta þriðjudagskvöld þann 27.10 hefst svo þriggja kvölda hraðsveitakeppni Byrs og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta, hvort sem það er til að spila eða horfa á. Þeim sem vantar aðstoð við myndun sveita eru hvattir til að hafa samband við Víði keppnisstjóra í síma 897-7628. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar