Greifatvímenningi B.A. lokið
miðvikudagur, 21. október 2009
Síðastliðinn þriðjudag var spilað þriðja og síðasta kvöld í impatvímenningi Bridgefélags Akureyrar. Þrjú efstu sæti kvöldsins voru þannig skipuð:
Impar
47,3 Sigurbjörn Haraldsson - Reynir Helgason
30,0 Jón Björnsson - Sveinn Pálsson
22,0 Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson
Þegar þrjár setur voru eftir var orðið ansi jafnt á toppnum en þá
gáfu þeir félagar Jón og Sveinn í og enduðu mótið með stæl.
Breytingar á samanlagðri stöðu voru minniháttar en lokastaða
eftir öll þrjú kvöldin var:
Impar
122,5 Jón Björnsson - Sveinn Pálsson
77,0 Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson
53,0 Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson
32,5 Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal
29,0 Pétur Gíslason - Björn Þorláksson
Öll frekari úrslit má nálgast hér.
Næsta þriðjudagskvöld þann 27.10 hefst svo þriggja kvölda hraðsveitakeppni Byrs og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta, hvort sem það er til að spila eða horfa á. Þeim sem vantar aðstoð við myndun sveita eru hvattir til að hafa samband við Víði keppnisstjóra í síma 897-7628.