Bridgefélag Hafnarfjarðar - Hraðsveitakeppni lokið
þriðjudagur, 27. október 2009
Eðvarð Hallgrímsson sigraði í tveggja kvölda hraðsveitakeppni
hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Með honum í sveit spiluðu Leifur
Aðalsteinsson, Sigurður Steingrímsson, Kristinn Kristinsson og
Óskar Sigurðsson. Næstu tvö mánudagskvöld verða eins kvölds
tvímenningar. Efstu sveitir:
1. +61 Eðvarð Hallgrímsson
2. +42 Indriði Guðmundsson
3. +41 Guðlaugur Sveinsson
4. +34 Hulda Hjálmarsdóttir
5. +6 Haraldur Ingason