Startmóti BA lokið
miðvikudagur, 30. september 2009
Þá er fyrsta móti af
vetrardagskrá Bridgefélags Akureyrar lokið en þar lauk tveggja
kvölda startmóti. Eftir fyrra kvöldið voru efstir þeir Pétur
Guðjóns og Toni með 62,9% skor. Nokkuð á eftir þeim komu svo
Frímann og Reynir með 56,7% og Hörður og Grettir þar á eftir með
55,8% skor. Seinna kvöldið hófst svo með látum þar sem Stefán
Vilhjálms og Örlygur Örlygs fóru mestann. Það fór svo að þeir
félagar sigldu fram úr Pétri, Tona og Jónasi Róberts, sem hafði
bæst við sem þriðji maður í stað Tona, í tveimur síðustu setunum og
höfðu af þeim toppsætið. Þriðja sætið kom svo í hlut Frímanns og
Reynis. Aðrir gerðu sér að góðu kaffi og dýrindis
súkkulaði. Eins og að ofan var ritað var
þetta aðeins fyrsta mótið af spengilegri vetrardagskrá en næstu
þrjú þriðjudagskvöld verður spilaður hinn geysivinsæli
Greifatvímenningur. Sem fyrr er spilað að
Skipagötu 14, 4. hæð og eru allir hvattir til að mæta og vera
með.
Allar frekari upplýsingar og skráning eru hjá Víði keppnisstjóra í síma 897-7628.
Öll úrslit má nálgast hér.