Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason sigruðu í Hafnarfirði
mánudagur, 21. september 2009
23 pör spiluðu eins kvölds tvímenning í Hafnarfirði mánudaginn
21.september. Hlutskarpastir urðu Sigurjón Harðarson og Haukur
Árnason en fast á hæla þeirra komu Einar Sigurðsson og Högni
Friðþjófsson sem eru loksins búnir að setja golfsettin inn í
geymslu. Í þriðja sæti urðu Erla Sigurjónsdóttir og Óli Björn
Gunnarsson. Öll úrslit og spil má sjá á heimasíðu
B.Hafnarfj.
Næsta mánudag hefst þriggja kvölda A-Hansen tvímenningur.