Bridgemót á Vestfjörðum
fimmtudagur, 17. september 2009
Sterkar bridskonur í heimsókn
Átta sterkar bridskonur frá
höfuðborgarsvæðinu komu til Suðureyrar í dag til að spila við
heimamenn. Árum saman hafa konurnar farið erlendis til að spila en
ákváðu að heimsækja Vestfirði í ár. Á föstudagskvöld verða þær
meðal keppenda á opnu móti í tvímenningi sem fram fer á Þingeyri.
Mótið hefst kl. 19:30 og eru bridsspilarar hvattir til að mæta. Á
laugardag verður síðan haldið lokað mót á veitingahúsinu Talisman á
Suðureyri. Þar munu konurnar heyja einvígi við Vestfirðinga.