Bridgefélag Selfoss: Síðasta móti vetrarins lokið
föstudagur, 17. apríl 2009
Síðasta keppni vetrarins var eins kvölds tvímenningur, sem fór fram fimmtudaginn 16. apríl. Spilaður var Howell tvímenningur með 10 pörum, þrjú spil á milli para. Meðalskor var 108. Staða efstu para varð þessi:
-
Brynjólfur Gestsson - Helgi Hermannsson 142
-
Ólafur Steinason - Gunnar Björn Helgason 142
-
Gísli Hauksson - Magnús Guðmundsson 128
-
Guðmundur Þór Gunnarsson - Gísli Þórarinsson 104
-
Símon Sveinsson - Bjarni Ágúst Sveinsson 103
Heildarstöðuna ásamt skori úr hverju spili má finna á þessari síðu.