Alfreðsmót B.A.

miðvikudagur, 22. apríl 2009

Nú er farið að styttast í annan endann í mótaskránni hjá Bridgefélagi Akureyrar þó enn séu skemmtileg mót eftir. Þriggja kvölda Alfreðsmóti var að ljúka en það er impa tvímenningur þar sem pör eru einnig dregin í sveitir. Það er óhætt að segja að ekki hafi vantað dramað en Óttar , Sveinn og Friðrik náðu svakaskori og unnu tvímenninginn með yfirburðum. Úrslit í sveitakeppninni réðust þó ekki fyrr en í síðustu setunni en með þeim í sigursveitinni voru Hans Viggó Reisenhus og Sigurgeir Gissurarson.
 
1. Óttar Oddson - Sveinn Aðalgeirsson - Friðrik Jónasson +151
2. Björn Þorláksson - Pétur Gíslason +89
3. Pétur Guðjónsson - Hörður Blöndal +75
4. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason +68
5. Guðmundur Halldórsson - Magnús E. Magnússon +35
 
Næstu mót eru opinn einmenningur 28.apríl og skemmtitvímenningur 5. maí. Ekki má svo gleyma Norðurlandsmótinu í tvímenning sem verður haldið á Dalvík föstudaginn 1.maí.

Heildarstaðan

2.kvöld spil

3.kvöld spil


 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar