Tvær sveitir enduðu jafnar í Hafnarfirði
Eftir að keppnisstjóri þurfti að leiðrétta tvö spil síðla kvölds kom í ljós að tvær sveitir urðu efstar og jafnar í þriggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar sem lauk í gærkvöldi. Innbyrðis viðureignir ráða því hvor sveitin hlýtur fyrstu verðlaun og þar hafði VÍS betur með 115 impum gegn 101 hjá Garðari. Lokastaðan varð þessi:
1. VÍS 1637
2. Garðar Garðarsson 1637
3. Hrund Einarsdóttir 1614
4. Eðvarð Hallgrímsson 1582
5. Harpa Fold Ingólfsdóttir 1558
6. Eyþór Jónsson 1557
7. Vinir 1552
8. Guðlaugur Bessason 1539
9. Tölvustoð 1512
10. Einar Sigurðsson 1478
11. Indriði H Guðmundsson 1435
12. Óli Björn Gunnarsson 1425
13. Hulda Hjálmarsdóttir 1415
14. Erla Sigurjónsdóttir 1406
15. Skeggi Ragnarsson 1332