SVÆÐISMÓT NORÐURLANDS EYSTRA -

mánudagur, 9. febrúar 2009

SVÆÐISMÓT NORÐURLANDS EYSTRA - OPINN TVÍMENNINGUR
Svæðismót Norðurlands eystra í tvímenningi verður haldið í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð, Akureyri, laugardaginn 14. febrúar 2009.
Mótið er silfurstigamót sem er öllum opið. Það er ekki hluti af Íslandsmótinu í tvímenning eins og undanfarin ár.
Spilamennska byrjar kl. 10 og mótslok áætluð um kl. 17:30.
Keppnisgjald er 2000 kr. pr. mann. Kaffi og te innifalið.
Við hvetjum bridgespilara til að vera með í skemmtilegu móti. Lágmarksþátttaka er 12 pör. Æskilegt að sem flestir skrái sig á spilakvöldi síns Bridgefélags.
Skráning berist Stefáni Vilhjálmssyni, símar 898 4475 og 462 2468.
Netfang: stefan.vilhjalmsson@mast.is
Skráning í síðasta lagi kl. 19 miðvikudaginn 11. feb. 2009.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar