Miðvikudagsklúbburinn: Kristmundur og Jón með 64,7% skor
miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Kristmundur Einarsson og Jón Sigurðsson unnu 26 para tvímenning með 64,7%. Þeir fengu að launum ostakörfur frá Ostabúðinni, Krókhálsi. Í öðru sæti voru Harpa Fold Ingólfsdóttir og Þórður Sigurðsson með 61,2%. Þau fengu bókina Sveitakeppni eftir Guðmund Pál Arnarson að launum.