Staðan í Sigfúsarmótinu á Selfossi eftir 2 kvöld af 4

föstudagur, 23. janúar 2009

u

Annað kvöldið í Sigfúsarmótinu 2009 af fjórum var spilað fimmtudaginn 22. janúar. Fyllt var upp í yfirsetuna, þannig að nú spila sextán pör í mótinu.Staða efstu para er þessi:

  1. Björn Snorrason - Guðjón Einarsson 464

  2. Sigurður Skagfjörð - Óskar Pálsson 454

  3. Kristján Már Gunnarsson - Helgi G. Helgason/Vilhj. Þór Pálsson 451

  4. Anton Hartmannson - Pétur Hartmannsson 450

  5. Ólafur Steinason - Gunnar Björn Helgason 436

Heildarstöðuna ásamt skori úr hverju spili má finna á þessari síðu.

Ekkert verður spilað í mótinu fimmtudaginn 29. janúar vegna Bridgehátíðar, en 3. kvöldið verður spilað fimmtudaginn 5. febrúar.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar