Halldór Gunnarsson og Kristján Mikkelsen Suðurlandsmeistarar í tvímenning 2009

miðvikudagur, 21. janúar 2009

Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið að Heimalandi undir Eyjafjöllum 17. janúar sl. Í mótinu tóku 17 pör þátt, og voru spiluð 3 spil á milli para, alls 51 spil. Efstu pör urðu þessi:

Röð

Par

Stig

1.

Halldór Gunnarsson - Kristján Mikkelssen

67

2.

Össur Friðgeirsson - Karl Björnsson

43

3.

Helgi Grétar Helgason - Kristján Már Gunnarsson

40

4.

Garðar Garðarsson - Gunnar L. Þórðarson

32

5.

Magnús Guðmundsson - Gísli Hauksson

25

6.

Leif Österby - Erlingur Örn Arnarson

8

7.

Sigurjón Pálsson - Sigurður Sigurjónsson

7



Heildarúrslitin má finna á þessari síðu.

Suðurlandsmótið í sveitakeppni verður síðan haldið 21. og 22. febrúar, væntanlega í Tryggvaskála. Skráning er hjá Garðari Garðarssyni í síma 844 5209 og Ólafi í síma 898 2880, eða tölvupósti ost@ms.is. Einnig verður fljótlega  hægt að skrá sig á netinu á netbókunarsíðu Bridgefélags Selfoss.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar