Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr fyrsta kvöldi Sigfúsarmótsins 2009

föstudagur, 16. janúar 2009

Keppni hófst í Sigfúsarmótinu 2009 fimmtudaginn 15. janúar. Mótið er fjögurra kvölda Howell tvímenningur, og er aðaltvímenningur félagsins um leið. Heiti mótsins er í höfuðið á heiðursfélaga félagsins, Sigfúsi Þórðarsyni, en hann gaf verðlaunagripinn sem keppt er um. Fimmtán pör mættu til leiks, og er staða efstu para þessi:

  1. Anton Hartmannson - Pétur Hartmannsson 239

  2. Kristján Már Gunnarsson - Helgi Grétar Helgason 225

  3. Björn Snorrason - Guðjón Einarsson 215

  4. Sigfinnur Snorrason - Ingibjörg Harðardóttir 207

  5. Þröstur Árnason - Ríkharður Sverrisson 197

Heildarstöðuna ásamt skori úr hverju spili má finna á þessari síðu.

Fyrir þá sem ætla að taka  þátt í Suðurlandsmótinu í tvímenning laugardaginn 17. janúar, þá má benda á upplýsingar á þessari síðu.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar