KEA hangikjöt er best

miðvikudagur, 17. desember 2008

Það segja allavega matgæðingar Bridgefélags Akureyrar en síðasta spilakvöld fyrir jól var KEA-hangikjötstvímenningur þar sem það var í boði auk magáls.
Það voru Frímann og Reynir sem nældu sér í stærsta bitann en þetta var lokastaðan:
 
1. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason 67,3%                                
2. Pétur Guðjónsson - Jónas Róbertsson 62,7%            
3. Þórarinn B. Jónsson - Páll Pálsson  59,3%                               
4. Sveinbjörn Sigurðsson - Gissur Jónasson  55,6%              
5. Örlygur Örlygsson - Björn Þorláksson  53,4%   
 
Við minnum á hið árlega jólamót sem að þessu sinni er styrkt af KEA Hótelum . Það verður haldið þar sunnudaginn 28.desember og hefst klukkan 10. Gott er að forskrá pör hjá Víði Jónssyni í síma 8977628 eða mæta tímanlega. Skemmtileg flugeldaverðlaun í boði að sjálfsögðu.

Öll úrslit og spil

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar