KEA hangikjöt er best
Það segja allavega matgæðingar Bridgefélags Akureyrar en síðasta
spilakvöld fyrir jól var KEA-hangikjötstvímenningur þar sem það var
í boði auk magáls.
Það voru Frímann og Reynir sem nældu sér í stærsta bitann en þetta
var lokastaðan:
1. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason
67,3%
2. Pétur Guðjónsson - Jónas
Róbertsson 62,7%
3. Þórarinn B. Jónsson - Páll Pálsson
59,3%
4. Sveinbjörn Sigurðsson - Gissur
Jónasson 55,6%
5. Örlygur Örlygsson - Björn
Þorláksson 53,4%
Við minnum á hið árlega jólamót sem að þessu sinni er styrkt af KEA
Hótelum . Það verður haldið þar sunnudaginn 28.desember og
hefst klukkan 10. Gott er að forskrá pör hjá Víði Jónssyni í síma
8977628 eða mæta tímanlega. Skemmtileg flugeldaverðlaun í boði að
sjálfsögðu.