Sviftingar í Greifamóti
Sviftingar í Greifamóti
Nú er tveimur kvöldum lokið af þremur í impatvímenningi Greifans hjá Bridgefélagi Akureyrar. Það er óhætt að segja að miklar breytingar hafi orðið hjá efstu pörum en Ragnheiður og Stefán fengu risaskor og tylltu sér þar með á toppinn.
2. kvöld:
1. Stefán Sveinbjörnsson - Ragnheiður Haraldsdóttir +70
2. Þórhallur Hermannsson - Sveinbjörn Sigurðsson +32
3. Örlygur Örlygsson - Björn Þorláksson +18
Heildarstaðan:
1. Stefán Sveinbjörnsson - Ragnheiður Haraldsdóttir +72,3
2. Þórhallur Hermannsson - Sveinbjörn Sigurðsson +63
3. Frímann Stefánsson - Reynir Haraldsson +45,9
4. Örlygur Örlygsson - Björn Þorláksson +41,6
5. Una Sveinsdóttir - Jón Sverrisson +31,3