Miðvikudagsklúbburinn 31.október
fimmtudagur, 1. nóvember 2007
22 pör mættu til leiks í Miðvikudagsklúbbinn 31. október.
Soffía Daníelsdóttir og Magnús Sverrisson unnu öruggan sigur. Þau fengu konfektkassa og fleira frá O.Johnsen og Kaaber. 2. sætið kom í hlut Ingólfs Hlynssonar og Hermanns Friðrikssonar og fengu þeir bókina Nútímabridge eftir Guðmund Pál Arnarson. Óskar Sigurðsson og Sigurður Steingrímsson voru dregnir út og fengu þeir súpur og sitthvað fleira.