Bridgefelag Akureyrar
Pétur og Jónas sigursælir hjá B.A.
Vetrarstarf Bridgefélags Akureyrar hófst með tveggja kvölda Startmóti, sem kennt er við Sjóvá-Almennar. Þar urðu efstir Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson með 59 stig. Jafnt þeim var "par" skipað fjórum spilurum: Valmar Valiaots, Pétri Gíslasyni, Sigfúsi Hreiðarssyni og Sigfúsi Aðalsteinssyni. Í þriðja sæti urðu Frímann Stefánsson og Reynir Helgason með 35 stig.
Næst á dagskrá var Greifatvímenningur, þriggja kvölda impatvímenningur, sem er nýlokið. Eftir verulegar sviptingar varð röð efstu para þessi:
1. Pétur Guðjónsson - Jónas Róbertsson 100
2. Haukur Harðarson - Grétar Örlygsson - Viðar Ólafsson 91
3. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason 82
4. Björn Þorláksson - Sveinn Pálsson - Jón Björnsson 43
5. Stefán Vilhjálmsson - Hermann Huijbens - Haukur Jónsson 32
Eins og sjá má voru innáskiptingar algengar!
Veitingahúsið Greifinn veitir verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Næsta mót B.A. er hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga sem hefst þriðjudaginn 30. október kl. 19:30 í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð. Þátttaka tilkynnist Víði Jónssyni, keppnisstjóra, sími 897 7628 eða Stefáni V., s. 898 4475. Aðstoðað verður við myndun sveita.