Topp 16 einmenningur B.A. og aðalfundur

fimmtudagur, 10. maí 2007
Topp 16 einmenningur B.A.
Síðastliðinn þriðjudag fór fram einmenningur þar sem þeir 16 spilarar reyndu með sér sem flest bronsstig höfðu fengið um veturinn. Keppnin var mjög spennandi framan af en Frímann náði góðri forystu með góðum setum gegn efstu mönnum og þegar upp var staðið var niðurstaðan býsna afgerandi. Þess má geta að af fimm efstu eru þrír ættaðir frá Mývatni!
1. Frímann Stefánsson 68,1%
2. Sveinbjörn Sigurðsson 55,9%
3. Pétur Gíslason 54,8%
4. Sigurður Erlingsson 52,6%
5. Björn Þorláksson 51,9%
Þriðjudaginn 15.maí kl 19:30 verður svo haldinn aðalfundur B.A. og eru spilarar hvattir til góðrar mætingar í aðalfundarstörf, veitingar og spil.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar