Topp 16 einmenningur B.A. og aðalfundur
fimmtudagur, 10. maí 2007
Topp 16 einmenningur B.A.
Síðastliðinn þriðjudag fór fram einmenningur þar sem þeir 16
spilarar reyndu með sér sem flest bronsstig höfðu fengið um
veturinn. Keppnin var mjög spennandi framan af en Frímann náði
góðri forystu með góðum setum gegn efstu mönnum og þegar upp var
staðið var niðurstaðan býsna afgerandi. Þess má geta að af fimm
efstu eru þrír ættaðir frá Mývatni!
1. | Frímann Stefánsson | 68,1% |
2. | Sveinbjörn Sigurðsson | 55,9% |
3. | Pétur Gíslason | 54,8% |
4. | Sigurður Erlingsson | 52,6% |
5. | Björn Þorláksson | 51,9% |
Þriðjudaginn 15.maí kl 19:30 verður svo haldinn aðalfundur
B.A. og eru spilarar hvattir til góðrar mætingar í aðalfundarstörf,
veitingar og spil.