Ríkharður og Þröstur Suðurlandsmeistarar í tvímenning 2007
sunnudagur, 4. mars 2007
Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið 3. mars í Tryggvaskála. Í mótinu tóku 16 pör þátt og Suðurlandsmeistarar urðu Ríkharður Sverrisson og Þröstur Árnason. Í öðru sæti urður Krisjtán Már Gunnarsson og Helgi Grétar Helgason og í þriðja sæti urðu Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson. Alls unnu 12 pör sér inn rétt til að spila á Íslandsmótinu í tvímenning þann 21. og 22. apríl nk. Nánar má finna um úrslitin hér.