Halldórsmóti B.A. lokið
miðvikudagur, 21. mars 2007
Halldórsmóti lokið
Nú þegar íslenskir bridgespilarar gera sig klára fyrir
undanúrslitin þá lauk þriggja kvölda Halldórsmóti í Board-a-Match
sveitakeppni hjá Bridgefélagi Akureyrar. Sveit Sparisjóðs
Norðlendinga landaði sigrinum eftir að hafa leitt nánast allan
tímann. Í henni spiluðu Björn Þorláksson, Pétur Gíslason,
Reynir Helgason og Frímann Stefánsson. Lokastaðan varð:
1. Sv. Sparisjóðs Norðlendinga 232
2. Sv. Unu Sveinsdóttur 198
3. Sv. Stefáns Sveinbjörnssonar 183
4. Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 179
Næstu tvö kvöld verða spilaðir stórskemmtilegir einmenningar
en þegar er lokið einu einmenningskvöldi. Sá sem nær besta
meðalskorinu í tveimur af þessum þremur mótum verður
Einmenningsmeistari B.A.
Félagið óskar sínum sveitum góðs gengis um helgina og vonandi
komast sem flestar áfram.