BR - Öruggur sigur Hermanns Friðrikssonar í hraðsveitakeppni

miðvikudagur, 22. nóvember 2006

Sveit Hermanns Friðrikssonar sigraði með nokkrum yfirburðum í hraðsveitakeppni BR en sveitin fékk hæsta kvöldskorið öll þrjú kvöldin! Í sveitinni spiluðu Hermann Friðriksson, Ómar Olgeirsson, Hlynur Angantýsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr. og Jón Ingþórsson. Undirföt.is skoraði grimmt síðasta kvöldið og tryggði sér annað sætið. Í bötlerúteikningi para urðu Björgvin Már Kristinsson og Sverrir Kristinsson efstir með 1,31 impa í spili.

1. Hermann Friðriksson           +252
2. Undirföt.is                           +132
3. Garðsapótek                        + 81
4. Aron Þorfinnsson                 + 56
5. Norðan 4                              + 44
6. Sölufélag Garðyrkjumanna   + 17

Föstudagsbridge 17. nóvember - 14 pör
1. Þorsteinn Joensen - Harpa Fold Ingólfsdóttir  61,6%
2. Gísli Steingrímsson - Sveinn R. Þorvaldsson     57,7%
3. Árni Hannesson - Oddur Hannesson                56,0%

Næsta þriðjudagskvöld, 28.nóvember hefst þriggja kvölda Cavendish tvímenningur. Búast má við mikilli þátttöku en þetta mót hefur verið afar vinsælt undanfarin ár. Tilvalin æfing fyrir Íslandsmótið í bötlertvímenningi sem fer fram laugardaginn 2. desember.
Takið frá fimmtudagskvöldið 7.desember fyrir jólabingó BR! Tilvalið fyrir spilara að taka maka og börn með í bingó!

Hraðsveitó-1-Hermann Friðriksson
1. Hermann Friðriksson: Vilhjálmur Sigurðsson jr., Ómar Olgeirsson,
Hermann Friðriksson, Jón Ingþórsson.
Einnig spilaði Hlynur Angantýsson í sveitinni

Hraðsveitó-2-Undirföt.is
2. Undirföt.is: Kjartan Ásmundsson, Björgvin Már Kristinsson,
Daníel Már Sigursson og Sverrir Kristinsson jr.
Einnig spiluðu í sveitinni Stefán Jóhannsson og Hlynur Garðarsson.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar