BR - Garðar og vélar með góðan endasprett í Swiss sveitakeppni

miðvikudagur, 1. nóvember 2006

Þriggja kvölda Swiss monrad sveitakeppni lauk þriðjudaginn 31.október. Eykt og Garðar og vélar voru vel efstar fyrir kvöldið og svo fór að þessar sveitir spiluðu saman allt síðasta kvöldið! Eykt þurfti að vinna síðasta leikinn með a.m.k. 7 impum til að vinna mótið en Garðar og vélar sigraði 27-7 í impum eða 8-0 og fengu því stærstu ostakörfurnar. Í sveit Garða og véla spiluðu Símon Símonarson, Rúnar Magnússon, Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson, Ísak Örn Sigurðsson og Páll Bergsson. Undirfot.is átti góðan endasprett og enduðu með jafn mörg stig og Eykt. Þar sem Aðalsteinn Jörgensen dróg lauftvist og þar með ómögulegt fyrir Björgvin Má að draga lægra spil var Undirföt.is í öðru sæti í mótinu.

Lokastaðan:
1. Garðar og vélar                   71
2. Undirfot.is                           60
3. Eykt                                     60
4. Garðsapótek                        57
4  Sölufélag Garðyrkjumanna   57
6. Esja Kjötvinnsla                    55

Swiss-1-Garðar og vélar
1. Garðar og vélar: Ómar Olgeirsson, Kristján Blöndal, Rúnar Magnússon,
Símon Símonarson ásamt Helga Bogasyni formanni BR. Einnig spiluðu í sveitinni
Ísak Örn Sigurðsson og Páll Bergsson.

Swiss-2-Undirfot.is
2. Undirföt.is: Hlynur Garðarsson, Kjartan Ásmundsson, Björgvin Már Kristinsson,
Sverrir G. Kristinsson og Helgebo.

Swiss-3-Eykt
3. Eykt: Sverrir Ármannsson, Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen,
Sigurbjörn Haraldsson og Helgebo. Einnig spiluðu í sveitinni Jón Baldursson
og Ásmundur Pálsson

Minnt er á næstu keppni Bridgefélags Reykjavíkur sem hefst þriðjudaginn 7.nóvember,
þriggja kvölda hraðsveitakeppni. Alltaf eins kvölds tvímenningar á föstudögum.
Spilamennska hefst kl. 19:00 í Síðumúla 37. Nánar á bridge.is/br.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar