Miðvikudagsklúbburinn: Páll og Ómar skelltu sér á toppinn í lokin og unnu sér inn gjafabréf á Lauga-Ás
fimmtudagur, 26. október 2006
Það var fín mæting hjá Miðvikudagsklúbbnum 25. október. 20 pör spiluðu Monrad Barometer, og var notast við BridgeMate við útreikning.
Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson sigruðu með 61,1% skor og fengu gjafabréf á Lauga-Ás fyrir 4.
2. sætið kom í hlut Geirlaugar Magnúsdóttur og Torfa Axelssonar sem hrepptu 2 konfektkassa og sælgæti.
Guðný Guðjónsdóttir og Hanna Friðriksdóttir voru dregnar út að lokinni verðlauna afhendingu og fengu sælgætisblöndu frá O.Johnsen og Kaaber og SS.