Miðvikudagsklúbburinn: Hrund og Villi JR með69,1% skor!!

miðvikudagur, 11. október 2006

Hrund Einarsdóttir og Vilhjálmur Sigurðsson JR unnu öruggan sigur á spilakvöldi Miðvikudagsklúbbsins. Þau enduðu með 69,1% skor, sem var 11,6% hærra en 2. sætið sem Andrés Þórarinsson og Halldór Þórólfsson enduðu í. Hrund og Villi fengu gjafabréf á veitingastaðinn Lauga-Ás, en Andrés og Halldór fengu 6000 kr. úttekt hjá SS.

Guðlaugur SVeinsson og Guðjón Sigurjónsson leiða bronsstigakeppni Sævars Karls fyrir karlspilara og Hrund Einarsdóttir leiðir bronsstigakeppni Sævars Karls fyrir kvenspilara. Bronsstigahæstu karl og kvenspilarar fá glæsilegt gjafabréf hjá Sævari Karli eftir veturinn.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar