Aðalfundartvímenningur Bridgefélags Selfoss
þriðjudagur, 26. september 2006
Aðalfundur Bridgefélags Selfoss var haldinn 22. september, og var stjórnin þar endurkjörin í heilu lagi. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum, var spilaður 11 para tvímenningur. Úrslitin eru komin inn á heimasíðu félagsins. Næst verður spilaður eins kvölds tvímenningur fimmtudagskvöldið 28. september. Síðan verður spilaður 3 kvölda butlertvímennignur 5. 12. og 19. október. Mótaskrána er annars að finna hér.