AÐALFUNDUR BRIDGEFÉLAGS REYKJAVÍKUR
þriðjudagur, 13. júní 2006
Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 14. júní nk. klukkan 17:30 í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. 3. hæð. Á dagskrá eru lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og veitingar verða í boði stjórnar.