Bridgefélag Reykjavíkur - Einmenningur og bronsstigauppgjör

miðvikudagur, 17. maí 2006

Einmenningsmót BR fyrir bronsstigahæstu spilara BR í vetur fór fram þriðjudaginn 16.maí. Veglegt gjafabréf frá Heimsferðum fyrir sigurvegarann!! Einnig voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta spilara vetrarins, efstu konuna og yngri spilarann. Í hléi var boðið upp á veitingar.

Magnús Magnússon gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði bronsstigakeppni vetrarins og einmenninginn en hann skaust einu stigi upp fyrir Pál Þórsson í síðustu umferð.

Stjórn BR vill þakka fyrir spilamennskuna í vetur og hlakkar til að sjá ykkur við græna borðið næsta haust!

Lokastaðan í einmenningnum

Einmenningur

3.sæti Guðmundur Baldursson, 1.sæti Magnús Magnússon, 2.sæti Páll Þórsson

Lokastaðan í bronsstigum:

Magnús Eiður Magnússon 429
Matthías Þorvaldsson 413
Sævar Þorbjörnsson 302
Ómar Olgeirsson 287
Ragnar S. Magnússon 284
Hermann Friðriksson 282
Páll Valdimarsson 280
Steinberg Ríkarðsson 274
Guðmundur Baldursson 267
Hrólfur Hjaltason 265


Efstu konur
Ljósbrá Baldursdóttir 175
Hrafnhildur Skúladóttir 119
Erla Sigurjónsdóttir 117
Eva Baldursdóttir 108
Alda Guðnadóttir 93
Arngunnur Jónsdóttir 92
Guðrún Jóhannesdóttir 92


Efstu yngri spilarar
Óttar Ingi Oddsson 122
Eva Baldursdóttir 108
Ari Már Arason 62
Gabríel Gíslason 30


Magnús

Bronskóngurinn Magnús Magnússon

Ljósbrá

Bronsdrottningin Ljósbrá Baldursdóttir

Óttar

Bronsprinsinn Óttar Ingi Oddsson

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar