Svæðamót Norðurlands vestra í tvímenningi
16 pör tóku þátt í svæðamóti Norðurlands vestra í tvímenningi á
Siglufirði sl. sunnudag, 19. mars.
Spiluð voru 60 spil undir öruggri handleiðslu þeirra bræðra Ólafs
og Birkis Jónssona. Kvóti Norðurlands vestra á Íslandsmótinu í
tvímenningi er 5 pör. Ljóst er að ekki munu öll efstu pörin nýta
sér þann rétt.
Staða efstu para:
1. Skúli V. Jónsson - Ólafur Sigmarsson, Sauðárkróki
2. Guðlaug Márusdóttir - Ólafur Jónsson, Siglufirði
3. Björn Ólafsson - Sigurður Hafliðason, Siglufirði
4. Eyjólfur Sigurðsson - Björn Friðriksson, Sauðárkróki
5. Birkir Jón Jónsson - Bogi Sigurbjörnsson, Siglufirði
6. Ásgrímur Sigurbjörnsson - Jón Örn Berndsen, Sauðárkróki