Ari Már og Óttar Ingi unnu sér inn matarkörfu frá SS
mánudagur, 27. mars 2006
Ari Már Arason og Óttar Ingi Oddsson unnu einskvölds tvímenning í Mánudagsklúbbnum 27. mars. Þeir fengu 61,5% skor og unnu sér inn matarkörfu frá SS. Gunnar Birgisson og Unnar Atli Guðmundsson fengu kaffikort fyrir 2. sætið. Hildur Valgeirsdóttir og Jóhann Larsen fengu gjafakörfu frá SS í aukaverðlaun og Anna Jónsdóttir og Sigurrós Sigurðardóttir fengu kaffikort í aukaverðlaun.